dagbók 2003 nám og kennsla á netinu  
Dorte
Helga

Bolette Höeg Koch


Heim Eldra efni Vefurinn minn

25.1.03 :::
 
Að hugsa um framtíðina með tæknina í fyrirrúmi er ögrandi verkefni. Ég held að enginn geti ímyndað sér hvað verður næst.
Ég er viss um að eldhússtörfin eiga eftir að breytast mikið, þegar ísskapurinn getur sagt til um hvað vantar og það síðan pantað beint á netinu. Reyndar hef ég slæma reynslu af pöntun af matvörum og fannst mér það mikil framför þegar vegirnir urðu það góðir að ég var enga stund að ná í nauðsynjavörur.
Ég á von á að maður eigi eftir að geta séð fólk sem maður talar við í síma og þar með verða tæknileg samskipti mun persónulegri. Ég hef satt að segja áhyggjur af því að með meiri tækni og miklum framförum eigi fólk eftir að færast lengra frá hvert öðru. Samskipti manna á milli munu stórminnka, það tel ég alls ekki vera til bóta.
Tæknin getur líka haft mikil áhrif á menntakerfið. Í fjarkennslu geta allir lært þegar þeim hentar og það hentar mér til dæmis mjög vel í því námi sem ég stunda í dag. Í framtíðinni gæti jafnvel verið að allt skólafólk allt frá 1. bekk til háskólanáms verði heima við nám sitt. Þá þyrfti að verja mun minni peningum í byggingu og viðhald á stórum skólabyggingum og keyrslu á skólabörnum. Nú þegar er fjarstýrður mjaltabúnaður farinn að ryðja sér til rúms í samfélagi bænda.
Við hjónin höfðum það í huga þegar við byggðum við fjósið. Búið er að leggja símakapla inn í fjósið svo að hægt sé að fylgjast með gripunum úr sjónvarpinu heima. Þessari þróun fylgir svo reglugerð frá landbúnaðarráðuneytinu sem segir til um að skylt sé að koma í gripahús a.m.k. einu sinni á dag. Einnig hefur þessi tækni í för með sé stygg og ómannvön dýr.
Það þurfa ekki líða 10 ár þar til að allir heimilismeðlimir verða komnir með sína eigin fartölvu. Mikill þrýstingur frá menntastofnunum veldur þessu meðal annars. Einnig er mjög erfitt að vera aðeins fimm manns um eina tölvu. Allir þurfa að skila verkefnum, ritgerðum, skýrslum og fleiru og fleiru.

::: posted by bolette at 06:16


24.1.03 :::
 
Í dag er ég byrjuð á fyrstu síðunni af heimasíðunni. Það er eitthvað klúður með vefsvæðið mitt hjá ismennt ég er búin að hafa samband við þau og ég vona að þetta lagist fljótt. Annars er ég alveg hissa hvað glósurnar mínar nýtast vel.

::: posted by bolette at 06:36


23.1.03 :::
 


Ég heiti Bolette Høeg Koch, ég er dönsk, fædd og uppalin þar. Foreldrar mínir eru Jette Høeg Koch, fyrirverandi kennari og Bent Johan Koch verkfræðingur sem nú er látinn.
Ég er gift Sigurði Steinþórssyni búfræðikandídat frá Hvanneyri og bóndi að Hæli. Foreldrar hans eru Steinþór Gestsson, fyrirverandi alþingismaður og bóndi og Steinunn Matthíasdóttir, hún er látin. Áhugamál mín eru afar fjölbreytt. Ég hef gaman af hestamennsku og annarri útiveru í náttúrunni. Samt finnst mér líka gott að sitja inni við ýmsar hannyrðir svo sem prjóna, útsaum, fatasaum og hekl. Mér hefur alltaf þótt gaman að fara til útlanda og skoða hið óþekkta og reyni ég að ferðast eitthvað á hverju ári. Það hentar mér vel að hafa alltaf eitthvað fyrir stafni og þess vegna er gott að hafa áhuga á ýmsum sviðum.Ég byrjaði strax að kenna eftir námið og hef kennt við sama skóla alla tíð, fyrst hét hann Ásaskóli svo Gnúpverjaskóli og nú er búið að sameina tvo skóla og heitir skólinn núna Brautaholts-og Gnúpverjaskóli.
Ég hef kennt þar í 17 ár fyrir utan 1ár sem við vorum búsett í Danmörku, þar sem maðurinn minn var við framhaldsnám.
Fyrir utan kennslu hef ég reynt að stjórna stóru sveitaheimili með öllu sem því fylgir.



::: posted by bolette at 10:08


 
1/21/2003 10:01:38 AM | bolette koch]
Þó að ég hafi ekki komið frá sérlega tæknivæddu heimili má segja að ég nýti mér tæknina mikið í dag. Ég eignaðist fyrstu tölvuna mína árið 1991, það var Makki sem átti eftir að nýtast mér í tæpan áratug. Ég byrjaði mín netsamskipti í gegnum Imbu og fór á nokkur námskeið hjá íslenska menntanetinu. Í dag á ég PC vél sem nýtist mér mikið bæði í starfi og námi. Einnig er til fartölva á heimilinu en hún er aðallega notuð af elstu dóttur minni sem er ný byrjuð að stunda nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Internetstengingin hér heima er ISDN og í skólanum er ljósleiðasamband.Ég nota internetið mest í skólanum en líka heima og sérlega póstinn.Ég hef samband við bæði fjölskylduna mína og vini úti í Danmörku og víðar, eins skipulegg ég ferðir okkar til útlanda í gegnum tölvuna.. Börnin nota netið til að afla sér upplýsinga tengdu skólanáminu og líka til þess að leika sér.
Í skólanum eigum við stafræna myndavél, hana notum við mjög mikið þar sem hver kennari getur átt sinn eigin diskling.

Við eigum 4 gsm síma, ég man nú ekki nákvæmlega dagsetningu af fyrstu innkaupunum, Ég held að það séu svona 8 ár síðan.. Ég keypti síma út í Danmörku þar sem gsm símar voru ekki eins algengir hér á landi eins og nú. Það var mikil bylting fyrir mig að geta alltaf náð í manninn minn.
Ég nota sms mest milli mín og barnanna minna og líka til systur minnar. Mér finnst það ágætt, það truflar minna og er fljótlegra en að hringja.

Við notum þráðlausa tölvu til stýringar á fóður kerfinu í fjósinu. Það eru til stór þægindi.

[edit]

::: posted by bolette at 09:37


21.1.03 :::
 
Þó að ég hafi ekki komið frá sérlega tæknivæddu heimili má segja að ég nýti mér tæknina mikið í dag. Ég eignaðist fyrstu tölvuna mína árið 1991, það var Makki sem átti eftir að nýtast mér í tæpan áratug. Ég byrjaði mín netsamskipti í gegnum Imbu og fór á nokkur námskeið hjá íslenska menntanetinu. Í dag á ég PC vél sem nýtist mér mikið bæði í starfi og námi. Einnig er til fartölva á heimilinu en hún er aðallega notuð af elstu dóttur minni sem er ný byrjuð að stunda nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Internetstengingin hér heima er ISDN og í skólanum er ljósleiðasamband.Ég nota internetið mest í skólanum en líka heima og sérlega póstinn.Ég hef samband við bæði fjölskylduna mína og vini úti í Danmörku og víðar, eins skipulegg ég ferðir okkar til útlanda í gegnum tölvuna.. Börnin nota netið til að afla sér upplýsinga tengdu skólanáminu og líka til þess að leika sér.
Í skólanum eigum við stafræna myndavél, hana notum við mjög mikið þar sem hver kennari getur átt sinn eigin diskling.

Við eigu 4 gsm síma, ég man nú ekki nákvæmlega dagsetningu af fyrstu innkaupunum, Ég held að það séu svona 8 ár síðan.. Ég keypti síma út í Danmörku þar sem gsm símar voru ekki eins algengir hér á landi eins og nú. Það var mikil bylting fyrir mig að geta alltaf náð í manninn minn.
Ég nota sms mest milli mín og barnanna minna og líka til systur minnar. Mér finnst það ágætt, það truflar minna og er fljótlegra en að hringja.

Við notum þráðlausa tölvu til stýringar á fóður kerfinu í fjósinu. Það eru til stór þægindi.


::: posted by bolette at 10:01


20.1.03 :::
 
Í dag er mánudagur eftir fyrstu staðbundnu lotuna. Það var margt mjög áhugavert sem við lærðum og andrúmsloftið var sérlega notalegt. Mér finnst það skifta miklu máli þegar maður er að læra nýja hluti. Ég er búin að hlaða forrita pakkann inn á tölvuna og nú er bara að byrja! Þetta er núna mín fyrsta tilraun til að skrifa inn á blogger. Það er frost úti en manni bregður hálf eftir öll hlýindin í vetur.

::: posted by bolette at 10:02




Powered by Blogger