dagbók 2003 nám og kennsla á netinu  
Dorte
Helga

Bolette Höeg Koch


Heim Eldra efni Vefurinn minn

31.1.03 :::
 
Ég dag dundaði ég mér við að skoða vefrallý frá nemendum í fyrra, ég sá margt skemmtilegt. Ég er að hugsa um að taka umhverfismennt fyrir. Við í Brautarholts- og Gnúpverjaskóla erum þátttakendur í Grænaflagginu hjá Landvernd. Vegna sameiningar skólanna verður að byrja ferlið næstum frá byrjun og það er svolítið mál. Ég held að vefrallý sé góð aðferð til þess að kynna efnið.

Vefrallýið á að snúast um sorp og endurvinnslu.
Slóðirnar sem ég fann í dag og mig langar til að nota eru ( ég notaði google og leit.is til að finna þær ) :
http://www.sudurland.is/sorpstod
http://www.umvefur.is
http://www.landvernd.is
http://www.sorpa.is/user/home
http://www.umhverfisvefurinn.is

Drög að verkefninu eru svona:
1. Í hvaða ruslflokk eru húsgögn og trébátar?
2. Hvernig er fatnaður endurnýttur?
3. Í hvaða flokka er hægt að flokka ruslið hjá Sorpstöð Suðurlands ? (hér er ef til vill hægt að svara með slóð)
4. Finnið kort sem sýnir flokkunarmöguleika í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og vistið það á svarblaðið.
5. Hvað eru umhverfismörk?
6. Er hægt að endurvinna cheeriospakka?

Hér vantar bæði kynningu og ferli en ég vona að hugmyndin sé skýr en að sjálfsögðu á ég eftir að fullvinna hana.




::: posted by bolette at 09:56


28.1.03 :::
 
Ef maður smellir á texti fer maður beint inn á siðuna mína. Ég hefði kannski frekar átt að kalla hana eitthvað annað en þetta er nú í fyrsta sinn. Og ég er bara stolt yfir að það gengur hjá mér.

::: posted by bolette at 11:12


 
tilraun 2. Slóðin mín er texti

::: posted by bolette at 11:08


27.1.03 :::
 
Æ, slóðin kom ekki með... ég verð að gera aðra tilraun seinna

::: posted by bolette at 10:47


 
Jæja eftir nokkrar tilraunir og hjálp frá ismennt gekk þetta allt saman upp. Slóðin mín er texti
Ég er bara búin að setja inn forsíðuna og það verður að duga í nokkra daga. Ég fer að vinna í frekari línkum.


::: posted by bolette at 10:46




Powered by Blogger