dagbók 2003 nám og kennsla á netinu  
Dorte
Helga

Bolette Höeg Koch


Heim Eldra efni Vefurinn minn

5.2.03 :::
 
jæja eitthvað fór þetta úrskeiðis,ég ætla að prófa aftur. Smelliðhér
Mikið var ég fegin að sjá leiðbeiningarnar frá Salvöru, það er gott að fá aðstoð. Ég skoðaði bloggið sem Salvör setti upp fyrir fyrirspurnir. Mér finnst þetta sniðugt.

::: posted by bolette at 09:48


4.2.03 :::
 
Ég ætla að tengja mig við heimasíðu frænda mins úti í Svíðþjóð, svona bara til þess að æfa mig. smellið hér.Ég er að reyna að halda áfram með heimasíðuna mína. Ég er ekki búin að flytja neitt út á netið.

::: posted by bolette at 10:44


3.2.03 :::
 
Eitthvað er nú að hjá mér, ég þarf eitthvað að endurskoða myndauppsetninguna hjá mér. Mér fannst gaman að undirbúa vefrallýið. Vankunnátta mín á dreamweaver stendur mér samt fyrir þrifum. Annars hef ég ekkert gert í þessu í dag. Það er búinn að vera foreldradagur hjá okkur í dag og það kostar dálitla orku.
Hvernig ætli það verði með rútuferðina norður, safnast nógu margir í 40 mannarútuna?

::: posted by bolette at 10:13


2.2.03 :::
 
Ég er búin að bæta tveimur síðum við heimasíðun mína.Þetta er allt að rifjast upp. Ég setti eitthvað inn um sjálfa mig og síðan um dætur mínar. Reydar vantar fleiri myndir. Það kemur næst. Ég er nú svolítið leið yfir því að ég get ekki tekið þátt í laugadags samkomum í Kennaraháskólanum. En svona er að búa úti á landi.

::: posted by bolette at 10:46




Powered by Blogger