14.2.03 :::
Nú er ég búin að borga bloggið mitt. Það er í lagi fyrir 1. mars. Í dag ætla ég að halda áfram með vefleiðangurinn minn og prófa eitthvað nýtt með myndvinnsluna. Sjá hvernig það gengur. Í dag er snjór, stillt og fallegt veður. Börnin mín eru í skólanum, þannig að ég á svolítinn tíma fyrir heimasíðuna mín í dag. Ég er búin að vera önnum kafin með að undirbúa 50 ára afmæli sem við héldum fyrir samkennara okkar í gær. Það gekk mjög vel, þar voru haldnar ræður og sungnir Glúntar. Það gerði hann Siggi minn, Haukur og Þorbjörg spilaði undir. Við gáfum afmælisbarninu grafik mynd eftir Hafdísi Ólafsdóttur, mér finnst myndir hennar mjög fallegar.
::: posted by bolette at 04:49
11.2.03 :::
Ég er búin að bæta við myndum, þetta gengur orðið vel. Ég er að vinna í vefleiðangrinum mínum um sorp og rusl. Mig langar til að taka myndir af nemendum mínum við lífræna ruslið. Ég held að það væri sniðugt að skreyta verkefnið með myndum af nemendunum sjálfum. Ég var að skoða bloggið hjá samnemendum mínum og sá að ég verð að gera eitthvað fyrir bloggið mitt til þess að hafa það eins flott og aðrir!!!
::: posted by bolette at 11:55
10.2.03 :::
Mikið er gott að geta sótt hjálp á sameiginlega blogginu okkar. Þorkell bjargaði mér alveg með vandræði mín frá því í gær. Ég er búin að breyta öllum myndunum mínum eftir hans ráðleggingum og nú lítur þetta bara vel út. Annars hef ég ekki unnið neitt meira við síðuna í dag.
::: posted by bolette at 10:54
9.2.03 :::
Þessi helgi hefur farið í að setja inn myndir. Ég er að slást við fá að ná png endingunni af myndunum. Ég hef það á tilfinningunni að myndirnar mínar verði of þungar í vinnslu. Ætli það sé hægt að gera eitthvað í því?? Ég þarf að skoða myndvinnsluleiðbeiningarnar betur. Mig langar svo að læra að setja sniðuga "hnappa" utan um linkana mína. Ég er búin að fikta svolítið en er ekki búin að finna þetta út ennþá.
::: posted by bolette at 09:42