dagbók 2003 nám og kennsla á netinu  
Dorte
Helga

Bolette Höeg Koch


Heim Eldra efni Vefurinn minn

27.2.03 :::
 
Nú er ferðaáætlunin mín orðin ljós, ég á að hitta bílstjórann á Selfossi á planinu hjá Guðmundi Tyrfings. Þar ætla ég að geyma bílinn minn. Mér finnst ég heppin að þurfa ekki að keyra lengra en á Selfoss í nótt. Ég er búin að eyða deginum í að vera á skólanefndarfundi og velja parket fyrir nýja samkomusalinn okkar í skólanum. Ég ætla að setja tenginguna við vefsíðuna mína inn hér. smellið hér Ég ætla bæði að setja hana hér og á kennarabloggið.

::: posted by bolette at 11:01


25.2.03 :::
 
Í gær fór ég með nemendurna mína til Reykjavíkur. Við fórum á Kjarvalsstaði og Þjóðmenningarhúsið, þetta var ákaflega fróðlegt og skemmtilegt. Krakkarnir voru mjög áhugsamir og gaman að fara með þá. Það er búið að vera mikið að gera í skólanum í dag. Ég er að hugsa um að reyna að fara með Guðmundi Tyrfings. frá Selfossi það er nær mér. Ég er samt ekki farin að tala við þá enn. Ég er að íhuga að fara að vista bloggið mitt annars staðar líka, það væri ekki gaman að missa það allt.

::: posted by bolette at 14:31


24.2.03 :::
 
Ég er að verða spennt að heyra eitthvað af þessum fyrirlestrum sem eiga að vera á Akueyri. Ég hefði nú samt viljað bíða með að fara norður þangað til í vor, maður veit aldrei hvernig veðrið verður. Ég er að safna efni í vefleiðangur mér finnst það mjög spennandi kennsluaðferð. Ég held að það höfði líka vel til nemendanna, að minnsta kosti á miðstiginu. Ég er jafnvel að hugsa um að prófa á mínum eigin börnum áður en ég prófa á nemendum. Mér finnst umræðan um útlit vefsíðanna skemmtileg, og þar koma fram hlutir sem ég hafði ekki hugsað útí, til dæmis að ef maður kemur inn í miðju, þá getur maður ekki notað back-takkann. Þetta vandamál hafði ég ekki hugleitt.

::: posted by bolette at 10:30




Powered by Blogger