8.3.03 :::
UT-2003 haldið á Akureyri, dagana 28. feb.-1. mars.
Ég hef aldrei tekið þátt í UT fyrr og vissi því ekki fyrir fram á hverju ég átti von. Ráðstefnan kom mér á óvart, þar var svo mikið að velja á milli. Það verður mjög gaman að lesa hjá ykkur hinum um fyrirlestra og málstofur sem ég komst ekki á.
Það sem ég hlustaði á fyrir utan sameiginlegu ræðurnar í Gryfjunni, voru
Námsgagnastofnun, Hafdís Finnbogadóttir – Fjaran og hafið
Námsgagnastofnun, Björn Sigurðsson – Listavefur krakka
Margrét Sverrisdóttir og Þór Jóhannsson – UT endurmenntun á forsendum
hugsmíðahyggju.
Allyson Macdonald, Anna Magnea Hreinsdóttir, Þuríður Jóhannsdóttir, Torfi Hjartarson, Ásrún Matthíasdóttir, Michael Dal, Samuel C. Lefever og Anna Ólafsdóttir – Nám UST rannsóknin frá leikskóla til háskóla
Ásrún Matthíasdóttir – Úttekt á íslenskum vefsíðum
Ég valdi að skrifa um ”Fjöruna og hafið” annars vegar og “Úttekt á íslenskum vefsíðum” hins vegar. Það var erfitt að velja, þetta var allt athyglisvert hvert á sinn hátt.
Hafið og fjaran.
Hafdís Finnbogadóttir var með sýnistofu. Það þýddi að hún varpaði skjá upp á vegg og sýndi okkur þennan nýja vef frá Námsgagnastofnun. Upphafssíðan synir þversnið af fjöru og sjó. Þar eru margir linkar til þess að velja eins og ; Klettafjara, grunnsævi, landgrunnur, djúpsævi og margt fleira. Bakvið linkana eru svo mikill fróðleikur settur upp með myndum, teiknuðum myndum, vídeobrotum og textum. Þar er líka að finna leiki.
Ég hef samt áhyggjur af vídeo-myndunum að tölvubúðanaður skólans sér nógu góður til þess að geta nýtt sér að þann hluta. Eins er gert ráð fyrir að maður noti skjávarpa til þess að vekja áhuga nemenda. Ég er í litlum skóla og þar er enginn skjávarpi.
Eftir innleggið frá Hafdísi fengum öll að skoða vefinn á borðtölvunum, það er alltaf skemmtilegra að fikta sjálf.
Á meðan gekk Hafdís um og svaraði spurningum, til dæmis um tengsl efnisins við Aðalnámskrána. Hún taldi að efnið hentaði samkvæmt námskrá nemendum frá 5.bekk upp í 10.bekk og jafnvel í framhaldsskóla.
Vefurinn er í fallegum litum og aðgengilegur. Það er mikill fróðleikur og á eftir að nýtast mér í kennslu, þar sem ég kenni náttúrufræði á miðstigi. Vefurinn er ennþá í smíðum og slóðin er www.namsgagnastofnun.is:8080/hafid
Úttekt á íslenskum vefsíðum.
Ásrún Matthíasdóttir var með fyrirlestur um rannsókn á íslenskum heimasíðum. Hún lýsti því hvernig hún og samstarfsfólkið hennar höfðu valið vefsíður frá stærstu fyrirtækjum landsins, 40 talsins og þeir skoðaðir en einungis upphafssíðan. Þau notuðu viðmið sem Jakob Níelsen hafði sagt frá. Upphafsíðan var flokkuð niður í 7 svæði.
Einkenni t.d. logo
Siglingaleiðir t.d. leit
Innihald
Auglýsingar
Kynning
Uppfylling
Ónotað
Eftir að hópurinn hafði skoðað 40 vefsíður með þetta flokkunarkerfi í huga, kom eftirfarandi í ljós. Einkenni tæki 7% af plássinu á forsíðunni, siglingaleiðir 12%,
innihald 21%, auglýsingar 3%, kynning 7%, uppfylling 11% og ónotað er 39%.
Mér finnst tvennt koma sérstaklega á óvart það er að innihaldið tekur ekki nema 21 % og að ónotaða svæðið skyldi vera 39 %. Það háði mér svolítið að þekkja ekki kenningarnar hans Jakob Neilsens, mér fannst fyrirlesturinn nýtast mér ver fyrir vikið.
Ásrún hafði samband við vefstjóra þessara 40 vefja og fékk hjá þeim upplýsingar um upplausn og fleira.
Það voru umræður á eftir um leturstærð – hvað það væri lítið um það að hægt væri að stækka letrið. Það var líka rætt um þetta ónotaða svæði sem áheyrendur voru ekki sammála um. Annars vegar fannst fólki að það sé auðveldara að fá yfirsjón yfir síðuna ef hún er ekki yfirfull og hins vegar að plássið væri illa nýtt.
Það kom líka fram að upplýsingar um hvað verður gert við persónulegar upplýsingar sem notandinn slær inn, eru ekki til staðar.
Þessi fyrirlestur var mjög vel sóttur, þetta var athyglisvert og mér finnst að það þurfi að halda svona rannsóknum áfram og benda vefstjórum á það sem talið er betra fyrir notendur til dæmis möguleika með að breyta leturstærð.
Þessir tveir dagar liðu hratt, mér fannst gaman að skoða þetta allt og ég á von á að ég sæki UT heim aftur á næstu ári.
::: posted by bolette at 03:05
3.3.03 :::
Ég er að bíða eftir skilaboðum frá Láru, ég veit að vísu að við eigum að skrifa 1-1,5 blaðsíðu um eitthvað athyglisvert sem við sáum eða heyrðum. Þetta kemur væntalega allt í ljós. Það var heilmikið að gera í skólanum í dag, bolludagur. Ég er búin að kaupa baunir fyrir morgundaginn, þannig að ekkert er að vanbúnaði.
::: posted by bolette at 13:17
2.3.03 :::
Ný komin heim eftir vel heppnaða daga á Akureyri. Þar var margt spennandi bæði að sjá og heyra. Ég er samt dálítið þreytt og langar til þess að hvíla mig í dag. Búa til bolludagsbollur og "hygge mig" med fjöldskyldunni. Í morgun komu danskir blaðamenn og heimsóktu mig, þeir eru að reyna að hjálpa okkur að selja Dönum íslenskt lambakjöt. Það er gott mál, ég vona að það gangi. Ég þakka ykkur öllum fyrir samveruna um helgina, það var ánægulegt að vera með ykkur.
::: posted by bolette at 06:42