15.3.03 :::
Ég var alveg ákveðin í að skrifa um námsefni í tölvustuddri kennslu og ég er langt komin með það. En svo fór ég að lesa greinar á lesefnalistanum hennar Láru og varð mjög upptekin af grein um þarfagreiningu í upplýsingatækni sem Lára skrifaði í fyrra. Ég er nýlega búin að taka þátt í að velja tölvutilboð fyrir skólann og ég hefði viljað vera búin að lesa greinina áður. Svo fór ég líka að lesa grein eftir Hauk Ágústsson úr VMA. Hún er löng og ég er ekki búin með hana en mér finnst hún áhugaverð.
::: posted by bolette at 09:53
13.3.03 :::
Í dag hef ég verið að skoða lesefnið sem hún Lára sendi okkur. Þar er greinilega margt áhugavert, samt er ég ekki alveg búin að átta mig á hvernig við eigum að notfæra okkur það. Ég er nú samt farin að skrifa eitthvað um sjálfa mig og upplýsinga- og tæknimennt. Ég ætla að halda því áfram á morgun og snúa því yfir á dönsku líka.
::: posted by bolette at 13:26
12.3.03 :::
Jæja, ég er komin á fullt í að kynna mér nýja verkefnið hjá Láru. Mér sýnist ég þurfi að lesa mér svolítið til fyrst, áður en ég fer að skrifa. Annars er heilmikið að gera, bæði í skólanum og heima. Í skólanum erum við að undirbúa árshátíð, nemendur mínir ætla að sýna söngleik um Jörund hundadagakonung. Hér heima ganga dagarnir með því að keyra ungviðið til og frá. Alltaf nóg að gera í því.
::: posted by bolette at 12:20
9.3.03 :::
Þessi helgi fór í að vera með börnunum mínum fyrir sunnan. Þau tóku þátt í sýningunni Æskan og hesturinn í Reiðhöllinni Víðidal. Það gekk allt vel hjá okkur. Dóttir hennar Kristínar, hún Áslaug, var líka á sýningunni. Skemmtilegt að við skyldum vera bæði í náminu og hestunum saman. Ég var búin að skrifa mína lýsingu um UT þegar skilaboðin frá Láru komu. Vona að þetta sem ég er búin að skrifa dugi. Allir eru uppgefnir eftir afrek helgarinnar og hlakka bara til þess að fara í háttinn.
::: posted by bolette at 14:17