dagbók 2003 nám og kennsla á netinu  
Dorte
Helga

Bolette Höeg Koch


Heim Eldra efni Vefurinn minn

22.3.03 :::
 
Það er búin að vera skemmtilegur dagur í dag. Ég fór í hlátursjóga í Smáraskóla hjá Valgerði. Það var mikil upplifun að hlæja svona að engu. Mér líður illa yfir að vera ekki búin með rannsóknina fyrir morgundaginn en ég ætla að drífa hana af í þessari viku.

::: posted by bolette at 11:35


19.3.03 :::
 
Ég er búin að fá tvær undirskriftir frá foreldrum og bíð eftir þeirri þriðju. Nú á ég bara eftir að finna einn strák í viðbót. Ég kemst því miður ekki til að hitta Björn þó ég þurfi mikið á því að halda. Flensan er ekki búin að stinga sér hér niður enn. Ég vona að við sleppum.

::: posted by bolette at 13:15


18.3.03 :::
 
Það lítur út fyrir að ég sé búin að fá tvö börn í rannsóknina hennar Sólveigar. Ég á reyndar eftir að fá undirskrift foreldranna en þeir tóku samt vel í það. Ég skrifaði Sólveigu og hún er búin að svara mér þannig að nú er bara að kýla á það. Ég er svolítið spennt hvernig mér gengur að framkvæma þetta.

::: posted by bolette at 14:07


17.3.03 :::
 
Ég er búin að skrifa Sólveigu og segja henni að ég ætla að taka þátt í rannsókninni. Ég er líka búin að fá leyfi hjá skólastjóranum. Ég er nú samt að hugsa um að nota eina af dætrum mínum sem rannsóknarefni og jafnvel fleiri. Annars er dagurinn búinn að fara í úrslit í stóru upplestrarkeppninni. Það fór mjög vel, einn nemandi minn úr 7. bekk lenti í þriðja sæti. Dóttir mín þjálfaði merina mína fyrir mig í dag, það var ágætt því að ég hafði lítinn tíma þegar ég kom heim.

::: posted by bolette at 10:53


16.3.03 :::
 
Hér kemur svo tengingin við heimsíðuna mína. Verkefnið er undir skilsíða. Það er skrifað á íslensku og dönsku. Lára, ef þig langar til að skoða sýndarveruleikann getur ég útvegað þér aðgangsorð, þú lætur mig bara vita. Ég er ákveðin í að taka þátt í rannsókninni hennar Sólveigar og ætla að reyna að vinna í því í þessari viku.

::: posted by bolette at 06:06




Powered by Blogger