dagbók 2003 nám og kennsla á netinu  
Dorte
Helga

Bolette Höeg Koch


Heim Eldra efni Vefurinn minn

28.3.03 :::
 
Ég er búin að setja fyrstu drög að vefleiðangrinum mínum um íslenskan landbúnað inn á heimasíðuna mína. Ég á reyndar eftir að finna myndir til þess að skreyta síðuna. Ég reyni kannski að gera það á morgun. Ég er að spekúlera í hvaða efni ég á að hafa í PowerPoints fyrirlestrinum mínum. Mig langar helst að gera eitthvert kennsluefni, kannski um jarðskjálfta..... Það er hálfgerðu vetur í sveitinni í dag. Árshátið skólans var haldin í gærkvöldi. Það gekk ljómandi vel að sýna leikrit um Jörund hundadagakonung. Nemendur mínir stóðu sig vel og ég er ánægð með þá.

::: posted by bolette at 12:22


25.3.03 :::
 
Ég kláraði í dag að skoða netnotkun unga fólksins og er búin að kóða niðurstöðurnar inn. Ég á reyndar eftir að tilkynna Sólveigu það. Ég hringdi í Björn í dag og fékk leiðbeiningar um myndirnar mínar. Ég er alveg alsæl með það. Hann bauð mér meira að segja að hringja aftur. Nú er ég búin að fá bréf frá Salvöru. Þannig að það er bara að halda áfram.

::: posted by bolette at 11:36


24.3.03 :::
 
Ég er búin að kóða inn tvö börn í dag og reikna með að klára hin tvö á morgun. Það var ánægjulegt að heyra frá Láru, það er gaman þegar vel gengur. Það er búið að vera nadstyggilegt veður hér í dag. Ég fékk póst frá Birni Sigurðssyni og ætla að hringja í hann á morgun og hann ætlar að hjálpa mér símleiðis. Þannig að mynirnar mínar verða kanske fínar þrátt fyrir að ég geti ekki mætt á laugardögum.

::: posted by bolette at 13:19


23.3.03 :::
 
Ég fór að skoða hvolpinn okkar. Hann er yndislegur, ég ætlar tengja mig við heimasíðuna mína svo þið getið séð hann. Við fáum hann heim eftir hálfan mánuð.
Ég er að skoða unga fólkið og vonast til þess að klára það á þríðjudag. Annas er ég búin að vinna í heimasíðunni minni í dag og er nokkuð ánægð með útkomuna.

::: posted by bolette at 11:41




Powered by Blogger