dagbók 2003 nám og kennsla á netinu  
Dorte
Helga

Bolette Höeg Koch


Heim Eldra efni Vefurinn minn

9.4.03 :::
 
Er að ganga frá PowerPoint sýningunni, þarf endilega að fara að pakka niður fatnaði fyrir útiveruna.... Ég er búin að fá dagskrána. Ég hlakka til að fá meiri kennslu hjá Birni um myndvinnsluna. Ég er ennþá ekki búin að finna út hvernig á að búa til hnappa, vona að ég geti lært það á morgun. *

::: posted by bolette at 15:32


8.4.03 :::
 
Nemendur mínir í 7. bekk hafa mjög gaman af að vinna vefrallý. Þeir spurðu mig hvort ég gæti ekki búið til fleiri svona verkefni. Þannig nú er bara að láta hendur standa fram úr ermum! Ég hlakka til að hitta ykkur hin í partýinu hjá Kristínu. Mér finnst þetta gott og skemmtilegt framtak. Ég vona að við eigum eftir að vinna aftur saman á næstu önnum. Ég held að glærusýningin mín sé alveg að verða tilbúin ég þarf bara að æfa mig betur.

::: posted by bolette at 15:15


7.4.03 :::
 
Ég er búin að skemmta mér við að prófa vefrallýið mitt í dag á tveimur bekkjum. Það var ákaflega ólíkt að leggja þetta fyrir. Annar hópurinn vann mun markvissara og gekk beint til verks á meðan hinn hikaði meira og vissi ekki í hvora löppina hann átti að stíga. Ég fann einn vankannt á rallýinu sem ég þarf að lagfæra. Best að ég reyni að gera það áður en ég kem með þetta suður.

::: posted by bolette at 14:00


6.4.03 :::
 
Ég fór að breyta blogginu mínu, eitthvað fór það nú aðeins öðru vísi en ég ætlaði. Kristín er að reyna að hjálpa mér. Það var líka hún sem hjálpaði mér að festa myndina mína inni í blogginu. Áslaug, dóttir hennar er búin að vera hjá mér síðan í gær. Það er búið að vera fjör hjá stelpunum. Það er gaman að sjá þær leika sér svona eðlilega saman.

::: posted by bolette at 12:36




Powered by Blogger